Gisting

Hafðu samband

Gisting í Kaupmannahöfn

Stracta Konstruktion ApS er með átta fullbúnar íbúðir í skammtímaleigu á góðum stað í Kaupmannahöfn. Leigutími er allt frá þremur gistinóttum upp í mánuð í senn.

Um er að ræða tvær þakíbúðir, tvær íbúðir á fimmtu hæð, eina á fjórðu hæð, eina á þriðju hæð, eina á annarri hæð og eina á jarðhæð í 6 hæða íbúðarhúsnæði á Flensborggade 39 í "Vesterbro" hverfinu. Hverfið er af mörgum talið með betri staðsetningum á Kaupmannahafnarsvæðinu. Alls eru 12 íbúðir í húsinu sem allt er í eigu fyrirtækisins. Íbúðirnar sem og húsið sjálft var allt endurnýjað árið 2007. Lesa má nánar um endurbætur á húsinu undir flokknum "verkefni" hér fyrir ofan.

Þakíbúðirnar tvær eru 79m2 að stærð hvor. Tvö svefnherbergi eru í íbúðunum með tvíbreiðum rúmum og svefnsófi er í stofu. Þakíbúðirnar eru með 6m2 svölum með hitara. Engin lyfta er í húsinu. Hinar íbúðirnar eru 89m2 með tveimur svefnherbergjum með tvíbreiðum rúmum eða tveimur einbreiðum og svefnsófi er í stofu í öllum nema íbúð 4th og 2th.