Við bjóðum einstakt verð á gistingu fram til 1. apríl 2009.
Verð fyrir þriggja herbergja íbúð á aðeins 750 dkr nóttin. Verðið miðast við að allt að fjórir gisti í íbúðinni og þrif eru ekki innifalin.
Nú eru að losna tvær íbúðir sem hægt er að leigja til lengri tíma. Báðar íbúðirnar eru á fjórðu hæð, önnur þeirra búin húsgögnum og öðrum húsbúnaði en hin er án húsgagna.
Stracta getur nú boðið tvær glæsilegar þakíbúðir í skammtímaleigu. Hægt er að leigja íbúðirnar allt frá einum degi upp í mánuð í senn. Íbúðirnar eru fullbúnar öllum húsbúnaði og svefnpláss er fyrir allt að 6 manns. Ef bætt er við gestarúmum er möguleiki á svefnplássi fyrir allt að 8 manns. Sjá nánar undir liðnum "Gisting".