|
Fyrsta verkefni Stracta Konstruktions í Danmörku er 6 hæða íbúðarhúsnæði á Flensborggade 39 í "Vesterbro" hverfinu sem er af mörgum talið með betri staðsetningum á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Þar hefur Stracta endurgert tíu 89m2, þriggja herbergja íbúðir. Að auki var gamla þakið á húsinu rifið niður og þar byggðar tvær hágæða "penthouse" íbúðir, hver um sig 79m2 á stærð. Þær íbúðir eru með 6m2 svalir.
Margar hendur hafa komið að verkinu og frá upphafi var sett krafa um bestu gæði í hverjum einasta krók og kima í húsinu.
Vinna við endurbætur hússins og byggingu tveggja nýrra "penthouse" íbúða byrjaði í nóvember mánuði 2006 og lauk á seinni hluta árs 2007.
Það er óhætt að segja að þessi rúmlega hundrað ára gamla eign sé búin að fá andlitslyftingu, jafnt að utan sem innan.
Allir veggir eru klæddir með gipsplötum til að auka einangrun og auka brunaöryggi í húsinu.
Öll gólf voru klædd með eikarparketi með hágæða hljóðeinangrun og settar voru massívar hurðar frá Swedoor Finland en þær auka enn frekar hljóðeinangrun á milli herbergja og íbúða.
Í loftum eru nýjar skrautrósettur og loftlistar. Með gólfum eru háir skrautgólflistar.
Baðherbergin voru flísalögð í hólf og gólf með þvottavél/þurrkara, hita í gólfum og vegghengdu klósetti svo dæmi séu tekin.
Eldhúsin eru með nýjum eldhúsinnréttingum með miklu skápaplássi. Þau eru útbúin uppvöskunarvél, helluborði með snertitökkum og öryggislæsingu og eldhúsviftu sem tengd er nýju loftræstikerfi sem hefur verið komið fyrir húsinu.
Í íbúðunum hefur verið komið fyrir dyrasímakerfi með myndavél við aðaldyrnar og innbyggðu ryksugukerfi sem keyrir á kröftugum mótorum í kjallara.
Í hverju herbergi er tengi fyrir net en búið er að koma fyrir sameiginlegu netkerfi í húsinu, einnig er möguleiki á að tengja síma og sjónvarp í hvert herbergi.
Eignin á Flensborggade 39 er með einn af betri kjöllurum í borginni þar sem staðsettar eru mjög rúmgóðar geymslur sem fylgja hverri íbúð.
|