Fréttir

 

Verið velkomin á heimasíðu Stracta Konstruktion ApS

Á síðunni má finna upplýsingar um fyrirtækið og þá þjónustu sem boðið er upp á. 

Undir flokknum "gisting" hér fyrir ofan má finna upplýsingar um leigu á íbúðum á besta stað í miðborg Kaupmannahafnar, Flensborggade 39. Um er að ræða 12 íbúða hús sem er í eigu fyrirtækisins og var allt endurnýjað fyrir skömmu á glæsilegan hátt. Húsið er 6 hæðir með 9 þriggja herbergja íbúðum, hver 89m2 að stærð, einni tveggja herbergja 70m2 íbúð og tveimur þakíbúðum sem eru hver um sig 79m2 að stærð, auk 6 m2 svala.

Hægt er að leigja íbúðir til skemmri og lengri tíma.

Við bjóðum þig velkominn/na að kíkja í kringum þig og kynnast fyrirtækinu og þjónustunni betur. Jafnframt hvetjum við þig til þess að hafa samband ef þú óskar eftir frekari upplýsingum.


Langtímaleiga

Þann 1. nóvember 2009 losnar 2ja herbergja íbúð á jarðhæð til langtímaleigu.

Nýjar íbúðir í skammtímaleigu
Nú eru íbúðir til skammtímaleigu orðnar átta talsins.